Helstu drættir um fjölskyldu, menntun og fyrri störf

Fæddur 3. janúar 1950.

Foreldrar: Sigrid Karlsdóttir, húsmóðir (sem er látin) og Garðar Sigurðsson, fyrrv. prentsmiðjustjóri.

Nám: Lauk guðfræðiprófi frá H.Í. árið 1984. Lagði stund á framhaldsnám í trúfræði við Vancouver School of Theology ´86-´88. Sótti ráðstefnu um sálgæslu (Pastoral Counseling) í Vancouver 1988, mannréttindaráðstefnu í Caux í Sviss 1996 og seminar í guðfræði og tilbeiðslu í Þessalónikeu vorið 1999, Aþenu 1998 og Pétursborg 1999. Meðlimur í Societas Liturgica (-fræðafélag um guðfræði tilbeiðslunnar) og hef sótt ráðstefnur á vegum félagsins til fjölda ára. Sömuleiðis hef ég sótt sumarskóla í guðfræði í Cambridge um árabil. Þá er vert að nefna að undirritaður hefur í 20 ár, ásamt kollegum, skipulagt og staðið fyrir guðfræðiráðstefnum að Hólum, lengst af í nafni Prestafélags hins forna Hólastiftis. Sömuleiðis hefur undirritaður um árabil tekið þátt í að skipuleggja og stjórna guðfræðisamverum í Skálholti undir merki Þrettándaakademíunnar.

Störf: Kenndi siðfræði við Þroskaþjálfaskólann ´82-´84 og Nýja hjúkrunarskólann árið 1989. Settur sóknarprestur í Þingeyrarprestakalli frá 1. sept. 1984, vígður 30 s.m. og þjónaði til 1. sept. 1986. Ráðinn aðstoðarprestur í Garðaprestakalli og héraðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi frá ´88 til ´91. Skipaður sóknarprestur í Glerárprestakalli á Akureyri frá 1. júní 1991 og hef þjónað þar til þessa.

Félags- og trúnaðarstörf: Formaður Rauðakross deildar Dýrafjarðarþinga ´85-´86. Formaður Æskulýðssambands vestfirskra safnaða ´85-´86. Formaður Félags brauðlausra presta ´89-´91. Fulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. Sat fulltrúaþing Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir hönd Eyjafjarðarprófastsdæmis til margra ára. Í stjórn Prestafélags hins forna Hólastiftis frá 1993, formaður frá 1998. Í handbókarnefnd þjóðkirkjunnar frá 2004.

Maki: 12. júní 1976, Sigríður Halldórsdóttir, f. 4. sept. 1954, B.S. í hjúkrunarfræði 1978, próf í uppeldis- og kennslufræði árið 1979, M.S. próf í hjúkrunarfræði, hjúkrunarkennslu og –stjórnun frá University of British Columbia 1988, doktorspróf í heilbrigðisvísindum frá Linköping- háskóla 1996. Prófessor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri frá 1998. Foreldrar: Halldór S. Magnússon, húsasmíðameistari og Kristrún Brandís Steingrímsdóttir, handavinnukennari og sjúkraliði. Sigríður hefur staðið fyrir kyrrðardögum tvisvar á ári í rúm 20 ár eða frá 1989, m.a. að Hólum.

Börn okkar: Sunna Kristrún f. 21. mars 1981. Leikskólakennari og djáknanemi. Gift Elíasi Inga Björgvinssyni og eiga þau tvo syni: Gunnlaug Davíð (f. 2010) og Eyjólf Jökul (f. 2011). María Guðrún f. 23. jan. 1985. Guðfræðingur frá H.Í. árið 2011. Í framhaldsnámi við Uppsalaháskóla. Jóhannes Benedikt f. 8. mars. 1998.

Skildu eftir svar

Please log in using one of these methods to post your comment:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s