Að efla Hóla í Hjaltadal sem andlega miðstöð Norðurlands með því að:
- Efla Hóla sem bænastað. Boðið verði reglulega upp á bænadaga og námskeið um bænina. Teknar verði upp svonefndar bænagöngur á sumrin. Leitast verði við að bjóða upp á pílagrímsgöngur á hverju sumri.
- Efla Hóla sem kyrrðarstað. Haldnir verði kyrrðardagar reglulega að Hólum, bæði fyrir einstaklinga og hópa, leika og lærða. Við hjónin erum bæði með reynslu af kyrrðardagahaldi m.a. stóðum við fyrir kyrrðardögum í Skálholti.
- Efla Hóla sem ráðstefnustað. Haldnar verði ráðstefnur, samræðuþing og málstofur um mikilvæg atriði er varða kirkju og kristni í landinu, bæði fyrir leika og lærða. Við hjónin erum bæði vön að standa fyrir ráðstefnum, samræðuþingum og málstofum.
